Heimild: Soccerway
Tyrkneska félagið Kasimpasa hefur fengið sænska markvörðinn Andreas Isaksson í sínar raðir.
Þessi þrítugi leikmaður kemur frítt til Kasimpasa eftir að samningur hans við PSV Eindhoven rann út.
Þessi þrítugi leikmaður kemur frítt til Kasimpasa eftir að samningur hans við PSV Eindhoven rann út.
Isaksson var kominn á bekkinn hjá PSV eftir að félagið krækti í Przemyslaw Tyton.
Isaksson skrifaði undir þriggja ára samning við Kasimpasa en liðið komst upp í úrvalsdeildina í Tyrklandi í vor.
Á ferli sínum hefur Isaksson leikið með Trelleborg, Juventus, Djurgarden, Rennes og Manchester City.



