Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 09. júlí 2012 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild: Fáliðaðir Fjölnismenn náðu stigi gegn Þór
Gunnar Sigurðsson.
Gunnar Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir 0 - 0 Þór

Fjölnismenn áttu heimaleik gegn Þórsurum en leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem Fjölnismenn voru manni færri frá þriðju mínútu þegar Marteinn Örn Halldórsson var rekinn af velli fyrir brot innan eigin vítateigs.

Gamla brýnið Gunnar Sigurðsson, sem var markmannsþjálfari Fjölnis, þurfti þá að fara í markið og gerði hann sér lítið fyrir og varði vítaspyrnuna.

Leikurinn var frekar bragðdaufur þar sem Fjölnismenn héldu þéttri vörn og Þórsarar komust ekki langt áleiðis.

Fjölnismenn eru því sem fyrr í öðru sæti deildarinnar en Þórsarar eru í því fjórða, þremur stigum eftir Fjölni.

Frekari umfjöllun kemur síðar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner