Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 09. júlí 2012 22:36
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Liverpool að fá Fabio Borini
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, sagði í dag að félagið væri við það að klára fyrstu leikmannakaup sumarsins og lýsti leikmanninum sem mjög spennandi.

Nú hefur BBC heimildir fyrir því að umræddur leikmaður sé Fabio Borini, framherji Roma, og að Liverpool greiði um 8 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Þessi 21 árs gamli landsliðsmaður Ítalíu hefur áður unnið með Rodgers, en hann spilaði sem lánsmaður hjá Swansea um tíma, auk þess sem þeir unnu saman með unglingaliði Chelsea.

Sem fyrr segir var Borini áður á mála hjá Chelsea. Hann lék nokkra leiki með aðalliðinu áður en hann Parma keypti hann. Hann náði þó ekki að leika fyrir Parma þar sem Roma keypti helmingshlut í leikmanninum.
Slapp
banner