Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 10. júlí 2012 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Wilshere fékk orð í eyra fyrir að veðja á Frimpong
Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal, hefur verið tekinn á teppið hjá UEFA eftir að hafa gefið í skyn að hann hefði veðjað á liðsfélaga sinn.

Wilshere, sem hefur verið meiddur í eitt ár, sagði á Twitter-síðu sinni að það yrði sterkur leikur að setja 10 pund undir á að Emmanuel Frimpong myndi skora fyrsta markið í leik Arsenal og Olympiakos síðasta vetur. Stuðullinn var 1/150. 

Eftir sjö mánaða rannsókn er orðið ljóst að Wilshere braut strangar reglur UEFA og fékk hann aðvörun frá sambandinu.

,,Leikmaðurinn hefur verið aðvaraður eftir að hafa brotið reglur um heiðarleika í leik og mótum," sagði talsmaður UEFA.

,,Úrskurðurinn var viðvörun," bætti hann við.

Eftir að Frimpong setti boltann rétt framhjá markinu í umræddum skrifaði Wilshere að hann hefði verið nálægt því að vinna pening.

,,Frimmy var næstum búinn að vinna mér inn smá pening þarna," skrifaði Wilshere.

Samkvæmt reglum UEFA má enginn leikmaður vera tengdur veðmáli á lið sitt, jafnvel þó þeir taka ekki þátt í viðkomandi leikjum.
Slapp
banner
banner