Heil umferð verður leiki í 2. deild karla í kvöld. Fyrst verður flautað til leiks á Dalvík þar sem Dalvík/Reynir mætir KV. Heimamenn unnu góðan sigur á Gróttu í síðasta leik en KV-menn eru ákveðnir í að rétta úr kútnum eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum.
Klukkan 19 hefst leikur Gróttu og KF á Seltjarnarnesi. Eftir ágætis byrjun hefur hallað undan fæti hjá Gróttu og liðið hrapað niður töfluna. KF er aðeins tveimur stigum frá öðru sætinu.
Á sama tíma hefst Völsungur - HK. Völsungur er í öðru sæti en HK er ekki langt undan.
Aðrir leikir hefjast klukkan 20. Topplið Reynis í Sandgerði mætir botnliði KFR, Hamar vonast til að rífa sig upp úr botnbaráttunni með því að vinna Njarðvík og þá leikur Afturelding við Fjarðabyggð í Mosfellsbænum. Fjarðabyggð er í fallsæti en Aftureldingarliðið er ákveðið í að sýna það að tap gegn KFR í síðasta leik var slys.
2. deild karla:
18:00 Dalvík/Reynir - KV (Dalvíkurvöllur)
19:00 Grótta - KF (Gróttuvöllur)
19:00 Völsungur - HK (Húsavíkurvöllur)
20:00 Afturelding - Fjarðabyggð (Varmárvöllur)
20:00 Reynir S. - KFR (N1-völlurinn)
20:00 Hamar - Njarðvík (Grýluvöllur)
Stöðuna í 2. deild karla má sjá hér að neðan.
Í kvöld verða einnig fjórir leikir í Pepsi-deild kvenna. Þór/KA situr í toppsætinu en liðið á heimaleik gegn Fylki sem er sýnd veiði en ekki gefin.
Pepsi-deild kvenna:
18:00 KR - ÍBV (KR-völlur)
18:30 Þór/KA - Fylkir (Þórsvöllur)
19:15 Stjarnan - Selfoss (Samsung-völlurinn)
19:30 FH - Breiðablik (Kaplakrikavöllur)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



