Það var stórleikur í 1. deild karla í gær þegar Fjölnir fékk Þór í heimsókn. Maður leiksins var gamli refurinn Gunnar Sigurðsson sem lék í marki Fjölnis frá 3. mínútu eftir að byrjunarliðsmarkvörðurinn fékk umdeilt rautt spjald.
Þórsarar náðu ekki að nýta sér liðsmuninn og leikurinn endaði með markalausu jafntefli.
Leikurinn var sýndur beint á vefsíðunni SportTv.is og má nú nálgast myndbrot af því helsta sem gerðist í leiknum.
Smelltu hér til að horfa á myndskeiðið
Það var Guðmundur Marinó Ingvarsson sem sá um lýsingu.




