Heimild: ESPN
Ítalska stórliðið AC Milan hefur áhuga á því að fá argentíska framherjann Carlos Tevez í sínar raðir.
Tevez, sem leikur með Manchester City, var nálægt því að ganga til liðs við Milan í lok janúar eftir að hafa haldið viðræður við yfirmann knattspyrnuámála hjá félaginu og varaforsetann en skiptin urðu ekki að veruleika.
Hann sneri þá aftur til Man City og vann ensku úrvalsdeildina með liðinu, en svo virðist sem að ítalska liðið hafi enn áhuga á að fá hann í sínar raðir.
Zlatan Ibrahimovic klárar skipti sín til Paris Saint-Germain á næsta sólarhringnum og Milan þarf framherja til þess að koma í stað hans, en Tevez er talinn vera efstur á blaði.
,,Tevez til Milan yrðu flóknar viðræður, en hann er klárlega einn af þeim sem Adriano Galliani, varaforseti félagsins vill fá. Kannski er rétti tíminn til að fara núna. Ég er að fara til Manchester, en ekki forsendurnar eru ekki viðskipti. Þegar maður er samt að verðast þá getur maður afrekað ýmsa hluti," sagði Giuseppe Riso, umboðsmaður Tevez.




