Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 15. júlí 2012 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Beckham með frábær mörk gegn Portland
Los Angeles Galaxy vann Portland Timbers 5-3 í bandarísku MLS-deildinni í gær og var enski miðvallarleikmaðurinn David Beckham í sviðsljósinu.

Hlutirnir byrjuðu ekki vel fyrir LA Galaxy, en Kris Boyd kom Portland Timbers yfir snemma leiks áður en David Beckham tók til sinna ráða. Hann lét vaða af 30 metra færi og söng boltinn í netinu.

Hann kom þá Galaxy yfir stuttu síðar með fallegu marki beint úr aukaspyrnu, áður en Landon Donovan skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu. Þriðja stjarnan í liðinu, Robbie Keane, bætti við fjórða marki Galaxy svo, en hann skoraði tvö mörk í leiknum.

Eins og flestum er kunnugt þá valdi Stuart Pearce, þjálfari breska landsliðsins, Beckham ekki í hópinn, en hann nagar sig eflaust í handarbakið núna. Sjá má mörkin hér að neðan.




Slapp
banner
banner