Cacau opinn fyrir tilboðum
Cacau, framherji Stuttgart í Þýskalandi, segist vera opinn fyrir tilboðum, en hann hefur lítið fengið að spila hjá þýska liðinu.
Cacau, sem er 31 árs gamall, vill ólmur fara með þýska landsliðinu á HM í Brasilíu sem fer fram eftir tvö ár, en hann er fæddur í Brasilíu.
Hann var skilinn eftir í sumar þegar Þýskaland fór á Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu, en hann var í fyrsta hópnum áður en það var skorið niður í 23 manna hóp.
,,Lítill leiktími hjá Stuttgart kostaði mig sæti mitt í þýska landsliðinu. Þjálfarinn hefur útskýrt fyrir mér að Tamas Hajnal er á undan mér í goggunarröðinni og að hann geti ekki lofað mér föstu sæti í liðinu," sagði Cacau.
,,En ef ég held áfram að fá svona lítinn leiktíma, þá get ég gleymt því að spila á HM í Brasilíu. Ég mun hlusta á tilboð og ef allt hljómar vel, þá gæti ég hugsað mér til hreyfings þar sem ég vil spila," sagði hann að lokum.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00