Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal vann Markus Liebherr minningarbikarinn í gær.
Mótið var haldið á einum degi þar sem þrjú lið tóku þátt. Anderlecht og Southampton tóku þátt ásamt Arsenal, en leiknir voru 45 mínútna leikir.
Anderlecht vann Southampton í fyrsta leiknum með einu marki gegn engu þar sem Tom de Sutter skoraði sigurmarkið.
Arsenal tókst að leggja Anderlecht að velli þar sem Henri Lansbury skoraði sigurmarkið eftir sendingu frá Carl Jenkinson.
Arsenal og Southampton gerðu þá 1-1 jafntefli í lokaleiknum þar sem Jay Rodriguez skoraði mark Southampton áður en Gervinho jafnaði. Arsenal vann mótið, en tapaði samt í tilganslausri vítaspyrnukeppni þar sem Southampton hafði betur.
Nafn Arsenal fór samt á bikarinn og ætti því þetta að róa taugar hollenska framherjans Robin van Persie.



