Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 15. júlí 2012 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Football Italia 
Real Madrid að undirbúa tilboð í Maicon
Spænska meistaraliðið Real Madrid er að undirbúa tilboð í brasilíska bakvörðinn Maicon hjá Inter Milan á Ítalíu.

Maicon, sem er 30 ára gamall á einungis ár eftir af samning sínum hjá Inter og vill félagið heldur selja leikmanninn en að bjóða honum nýjan samning, en hann hefur verið einn af bestu hægri bakvörðum heims undanfarin ár.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, sannfært stjórn liðsins um að fá leikmanninn í þeirra raðir, en talið er að Madrídingar leggi fram 8 milljóna evra tilboð í hann.

Real Madrid mun bjóða honum þriggja ára samning þar sem hann mun þéna fjóra og hálfa milljón evra á ári.

Inter er að hreinsa heldur betur til í liðinu, en félagið hefur þegar látið Lucio og Diego Forlan fara. Þá er félagið einnig að reyna að losa sig við Dejan Stankovic og Julio Cesar, en Inter reynir að spara þar launakostnaður þeirra er of hár.


Slapp
banner
banner
banner
banner