Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   sun 15. júlí 2012 19:10
Arnar Daði Arnarsson
Maggi Gylfa.: Ég fagna þessum stigum, engu öðru
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna var himinlifandi með 3-2 sigur ÍBV á Fram á Hásteinsvellinum í dag. Eyjamenn hafa nú unnið fimm leiki í röð í deildinni, eftir erfiða byrjun.

,,Við komumst tvisvar sinnum í tveggja marka forystu og undir venjulegum kringumstæðum hefði það átt að vera allt í lagi en við gáfum það eftir og við erum svolítið gjarnir á það að missa einbeitinguna þegar við skorum mark eins og í Evrópuleiknum þegar við skorum þá fáum við á okkur mark strax í bakið, tvisvar sinnum hérna í dag og þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að skoða," sagði Magnús sem segir að sínir menn séu orðnir virkilega þreyttir og því kærkomið frí sem ÍBV liðið fær núna, í viku.

,,Menn hafa afsökun í dag og ég fyrirgef þeim það fyrst við unnum leikinn en ég var orðinn ansi stressaður að missa niður tvisvar sinnum forskot. Það er komið rosaleg þreyta í mannskapinn," sagði Maggi sem viðurkennir að ÍBV-liðið hafi verið heppið á köflum og einfaldlega að hafa náð að landa þessum þremur stigum,

,,... við vorum heppnir að fá þessi þrjú stig í dag, Framararnir hefðum hæglega getað verið búnir að jafna áður en við komumst í 2-0, þeir hefðu hæglega getað verið búnir að jafna í stöðunni 3-2 en þetta tókst í dag og ég fagna þessum stigum, engu öðru," sagði hinn geðþekki, Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna sem sitja í 4.sæti deildarinnar eftir sigurinn í dag.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner