Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 15. júlí 2012 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Villas-Boas: Það var mikilvægt að fá Gylfa
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, ræddi um þá Gylfa Þór Sigurðsson og Jan Vertonghen í sjónvarpsviðtali við heimasíðu félagsins.

Villas-Boas tók við Tottenham Hotspur á dögunum, en fyrstu kaup hans voru Gylfi Þór Sigurðsson frá Hoffenheim, eftir miklar getgátur um næsta áfangastað hans og þá fékk hann belgíska varnarmanninn Jan Vertonghen frá Ajax.

,,Ég er mjög spenntur fyrir að fá þessa leikmenn inn. Jan hefur ekki sannað sig í ensku úrvalsdeildinni, en hann er leikmaður sem hefur átt farsælan feril til þess og varð meðal annars fyrirliði Ajax," sagði Villas-Boas.

,,Hann er augljóslega leikmaður sem ákveðinn og með frábæran persónuleika. Hann passar við leikstíl liðsins og hvernig liðið vill spila, sem er partur af hefð Tottenham. Hann er varnarmaður sem vill fara fram með boltann og til þess að skipuleggja liðið."

,,Hann er fljótur að finna plássið og er harður af sér, svo ég held að hann hafi allt sem þurfi til þess að vera frábær leikmaður í ensku úrvalsdeildinni."

,,Gylfi er náttúrulega leikmaður sem sprakk hjá Swansea á síðasta tímabili og á síðustu sex mánuðum. Hann spilaði náttúrulega áður á Englandi svo hann þekkti umhverfið, fékk tækifærið hjá Swansea og heillaði alla."

,,Hann var eltur af bestu liðunum fyrir tímabilið og það var mikilvægt fyrir okkur að fá hann. Þetta er leikmaður sem er með frábærar hreyfingar, getur fundið úrslitasendinguna og getur einnig skorað mörk. Þannig það var mikilvægt fyrir okkur að fá þessa leikmenn,"
sagði Villas-Boas.
Slapp