Fótbolti.net skoðar fyrri helming Pepsi-deildar karla og velur þá menn sem skarað hafa fram úr. Leikmaður umferða 1-11 í deildinni hefur verið valinn Atli Guðnason, sóknarmaður FH.
Atli hefur verið í góðum gír í deildinni í sumar og verið stórhættulegur upp við mark andstæðingana. Sjálfur hefur hann skorað sex mörk í tíu leikjum ásamt því að vera duglegur að leggja upp fyrir samherja sína.
Atli var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins árið 2009.
„Mér finnst ég hafa staðið mig mjög vel í sumar og mjög svipað og sumarið 2009. Mér finnst aðalatriðið vera það að undirbúningstímabilið gekk vel og liðið kemur inn í mótið í góðu standi. Við erum samstilltir og ef liðsheild er til staðar þá stend ég mig yfirleitt vel. Þannig að ég á liðinu ansi mikið að þakka fyrir þessa viðurkenningu," segir Atli sem telur að FH sé enn ekki búið að sýna sínar allra bestu hliðar.
„Við eigum eitthvað inni, okkur vantar enn stöðugleika og þegar hann dettur inn þá er allt mögulegt. En þetta er í rétta átt og við þurfum að halda rétt á spöðunum til að útkoman í haust verði góð."
Atla lýst vel á toppbaráttuna framundan. „Við ætlum okkur að halda okkur þarna upp og til þess að það gangi eftir þá þurfum við að spila leikina eins og lið," segir Atli Guðnason.





