Chelsea fær Thorgan Hazard á morgun
Chelsea er nálægt því að ganga frá kaupum á Thorgan Hazard og ættu félagaskiptin að ganga í gegn á morgun samkvæmt Antoine Sibierski, yfirmanni íþróttamála hjá Lens.
Þessi 19 ára miðjumaður mun þá feta í fótspor eldri bróður síns Eden Hazard sem gekk til liðs við Chelsea í sumar frá Lille fyrir 32 milljónir punda.
Thorgan Hazard hefur verið í herbúðum Lens síðan 2007 og lék ellefu leiki með liðinu í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Nú er útlit fyrir að næsti meðlimur Hazard fjölskyldunnar muni skrifa undir hjá Evrópumeisturunum á morgun.
,,Þetta ætti að vera opinberað á morgun," sagði Sibierski á heimasíðu Lens.
,,Við vildum ekki láta hann fara og ætluðum að framlengja samning hans en hann sýndi því engan áhuga og vildi yfirgefa félagið."
,,Stuttu síðar komst ég að því að Chelsea vildi fá hann og þá áttaði ég mig á því afhverju hann vildi fara. Ég skil það."
Jean Luis-Garcia, þjálfari Lens, er svekktur að missa hann frá félaginu.
,,Ég óska honum til hamingju. Því miður getum við ekki haldið honum. Hann er 19 ára strákur og hann vill fylgja bróður sínum."

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar