2. deild: KF og Völsungur skildu jöfn
Sigurbjörn Hafþórsson nældi í stig fyrir KF og hér fagnar hann markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Nenad Zivanovic kom heimamönnum yfir með marki á 19. mínútu leiksins áður en Stefán Jón Sigurgeirsson jafnaði metin fyrir gestina aðeins níu mínútum síðar. Marko Blagojevic kom gestunum svo yfir á 55. mínútu leiksins og var útlit fyrir að Völsungur færi með sigur af hólmi.
Sigurbjörn Hafþórsson sá þó til þess að svo færi ekki og jafnaði metin fyrir KF um fjórum mínútum fyrir leikslok. Lokatölur því 2-2. Völsungur er því í öðru sæti með 22 stig á meðan KF heldur fjórða sætinu með 20 stig.
Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net:
KF 2 - 2 Völsungur
1-0 Nenad Zivanovic ('19 )
1-1 Stefán Jón Sigurgeirsson ('28 )
1-2 Marko Blagojevic ('55 )
2-2 Sigurbjörn Hafþórsson ('86 )
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12


