Thiago Silva er spenntur fyrir að hefja leik með Paris St. Germain en viðurkennir að það hafi verið erfitt að yfirgefa AC Milan.
Brasilíski varnarmaðurinn gekk til liðs við PSG á dögunum fyrir háa fjárhæð þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning við AC Milan einni viku áður.
Brasilíski varnarmaðurinn gekk til liðs við PSG á dögunum fyrir háa fjárhæð þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning við AC Milan einni viku áður.
AC Milan reyndi þá að fæla burt áhuga annarra liða en gat að lokum ekki hafnað risatilboði PSG og því mun Silva spila í frönsku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð ásamt Zlatan Ibrahimovic sem fór einnig til PSG frá AC Milan.
,,Ég var ánægður með félagaskiptin og leiður yfir brottför minni frá Milan því þar upplifði ég sterkar tilfinningar," sagði Silva.
,,Svona er fótbolti, einn daginn ertu hér og þann næsta ertu einhversstaðar annarsstaðar. Ég framlengdi samning minn við þá viku áður."
,,Fólk segir að ég hugsi bara um peninga, sem er truflandi. Ég er ekki að græða meiri pening hjá PSG. Þetta er ekki mér að kenna, ég myndi vilja biðja stuðningsmennina afsökunar."
,,Þetta var erfið staða fyrir mig, ég vildi ekki yfirgefa Milan og fjölskyldan mín vildi það ekki heldur. En PSG er draumalið eins og Ibrahimovic sagði."





