Blikar að fá tvítugan danskan sóknarmann lánaðan
Rohde (lengst til vinstri) í miðbæ Reykjavíkur eftir viðræður við Ólaf Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks.
Mynd: Aðsend mynd
Þetta staðfesti Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, í samtali við vefsíðu Morgunblaðsins.
Breiðablik er að styrkja sóknarleik sinn en liðið hefur aðeins gert 9 mörk í 11 leikjum í Pepsi-deildinni.
Rohde er 20 ára og var markahæstur hjá U19 liði Nordsjælland tímabilið 2010-11. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið eftir að hafa komið inn sem varamaður í leik gegn Silkeborg í ágúst í fyrra.
Í fyrra skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning við Nordsjælland en er nú á leið til Breiðabliks á lánssamningi.
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar




