Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð hefur styrkt sig með tveimur leikmönnum. Liðið er í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Milan Markovic frá Serbíu er 33 ára varnarmaður og hefur spilað 32 leiki á Íslandi með Tindastóli/Hvöt og skorað í þeim 6 mörk.
Collin Harrison kemur frá Bandaríkjunum en er einnig með slóvenskt ríkisfang. Þar sem Slóvenía er í ESB getur Collin leikið með Fjarðabyggð án kvaða en einungis þrír leikmenn mega vera á leikskýrslu sem koma frá löndum utan ESB.
Collin er 24 ára miðjumaður sem spilaði í háskólaboltanum með Stefáni Þór Eysteinssyni leikmanni Fjarðabyggðar en á síðasta ári lék Collin í efstu deild í Kanada með Capital City.
Báðir hafa þeir fengið leikheimild.



