Leikmaður AIK: Erum atvinnumenn og FH er ekki gott lið
Atli Guðnason og félagar í FH eru ekkert góðir samkvæmt Persson
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
FH-ingar gerðu jafntefli við AIK í Solna í gær þegar liðin mættust á Råsunda-leikvanginum, en Atli Guðnason skoraði mark íslenska liðsins.
Leikmenn AIK voru allt annað en sáttir við sína frammistöðu og ákvað varnarmaðurinn Persson að segja sína skoðun á leiknum og FH-liðinu.
,,Mín mynd af leiknum er sú að þeir ná 1-1 jafntefli án þess að skapa sér nokkuð. Við erum atvinnumenn í fótbolta og erum í fullri vinnu við að spila þessa íþrótt og mér fannst í hreinskilni sagt FH-liðið ekki gott," sagði Persson.
FH hefur ekki tapað í deildinni á heimavelli í tvö ár, en Persson segist ekkert hræddur við þá staðreynd.
,,Því lengra sem á líður því nær eru þeir að tapa á heimavelli," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00



