Miðjumaðurinn Mark Doninger hefur nú endanlega gengið frá vistaskiptum sínum frá ÍA yfir í Stjörnuna og er kominn með leikheimild með sínu nýja félagi.
Hann verður því löglegur með liðinu á morgun þegar Stjarnan tekur á móti KR í Pepsi-deild karla. Þar mun hann mæta sambýlismanni sínum af Akranesi, Gary Martin sem samdi við KR í gær.
Hann verður því löglegur með liðinu á morgun þegar Stjarnan tekur á móti KR í Pepsi-deild karla. Þar mun hann mæta sambýlismanni sínum af Akranesi, Gary Martin sem samdi við KR í gær.
Mark Doninger er 23 ára gamall og spilaði áður með aðalliði Newcastle United á Englandi þar sem hann var á bekknum í ensku úrvalsdeildinni fyrir þremur árum.
Hann kom til ÍA fyrir tímabilið 2011 og spilaði 22 leiki með liðinu í 1. deildinni og bikarnum síðasta sumar og skoraði 9 mörk.
Hann fór svo mikinn á undirbúningstímabilinu í vor og skoraði mikið en náði ekki alveg að fylgja því eftir þegar í mótið var komið og skoraði eitt mörk í 8 leikjum með ÍA á fyrri hluta tímabilsins.
Hann hafði lýst því yfir að hann vildi losna frá ÍA og komst að samkomulagi við félagið um það fyrr í vikunni og er nú farinn í Stjörnuna.





