fös 20. febrúar 2004 00:00
Elvar Geir Magnússon
Robert Earnshaw
Robert Earnshaw leikmaður Cardiff.
Robert Earnshaw leikmaður Cardiff.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Robert Earnshaw er einn af földu fjársjóðunum í ensku knattspyrnunni. Þessi ungi tekníski sóknarmaður hefur margsinnis verið orðaður við úrvalsdeildarlið en hann er bara sáttur við hlutverk sitt hjá Cardiff City í ensku 1.deildinni. En talið er að bráðlega komi tilboð sem Cardiff geti ekki hafnað enda er félagið ekki í nægilega góðri stöðu fjárhagslega.

Earnshaw hefur skorað sex mörk í 10 landsleikjum fyrir Wales og á miðvikudaginn skoraði hann þrennu gegn Skotlandi í 4-0 sigri. Þar með hefur hann skorað 27 mörk á þessu keppnistímabili í öllum keppnum.

"Hvort sem ég er að spila fyrir Cardiff eða Wales þá vil ég alltaf skora sem mest. Ég hef hingað til aðallega verið notaður sem varamaður fyrir frábæra leikmenn eins og John Hartson og Craig Bellamy en nú vil ég sýna það að ég hef alveg það sem þarf til að leika frá upphafi til enda." sagði Earnshaw.

Mark Hughes landsliðsþjálfari Wales segist sannfærður um það að Earnshaw geti spilað í úrvalsdeildinni. Draumur Earnshaw er þó að komast þangað með liði Cardiff. "Ég hugsa ekki mikið um framtíðina. Ég er ánægður þar sem ég er núna og bíð spenntur eftir leiknum gegn Sunderland um helgina."
Slapp
banner
banner