Willian vonast til þess að fara til Chelsea
Willian, leikmaður Shakhtar Donetsk í Úkraínu, vonast til þess að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea á næstu vikum.
Willian, sem er 23 ára gamall vængmaður hefur farið mikinn í liði Shakhtar undanfarin ár en Brasilíumaðurinn er lykilmaður liðsins.
Mircea Lucescu, þjálfari liðsins, staðfesti á dögunum að félagið hefði hafnað tilboði upp á 33 milljónir evra í leikmanninn, en Willian er allt annað en sáttur með það þar sem hann segist mega fara ef tilboð upp á 25 milljónir evra býðst.
Hann er þó enn vongóður um að fara og vonast hann innilega til þess að vera leikmaður Chelsea á næstu vikum.
,,Ég veit ekki hvað þjálfarinn sagði, en rétti verðmiðinn er 25 milljónir evra. En burt séð frá verðinu þá vil ég spila fyrir lið eins og Chelsea, sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu," sagði Willian.
,,Ég er mjög pirraður yfir því að stjórnin leyfði mér ekki að fara. Þetta hefði verið gott fyrir mig og félagið. Ég myndi spila í stærri deild og vaxa sem leikmaður. Þetta eru ekki fréttir fyrir neinn, það vita allir að ég vilji fara."
,,Þetta er allt spurning um bið, en það getur allt gerst enn," sagði hann að lokum.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar