„Markmiðið fyrir leikinn var að koma vel út úr þessum leik og verða okkur ekki til skammar," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir 2-1 tap gegn HJK Helsinki í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Þetta var seinni leikur liðanna en HJK fer áfram með samtals 9-1 sigur.
Þetta var seinni leikur liðanna en HJK fer áfram með samtals 9-1 sigur.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 HJK Helsinki
Rúnar var ánægður með þennan seinni leik en hann gerði alls sjö breytingar á byrjunarliði sínu og gaf ungum leikmönnum tækifæri. Hann viðurkenndi það þó að þegar heildarmyndin væri skoðuð séu það gríðarleg vonbrigði að falla út með þessum hætti.
„Munurinn er ekki svona mikill þó þessir Finnar séu gríðarlega sterkir. Svona mikill munur er ekki á liðunum og ef við hefðum nýtt færin okkar fyrsta hálftímann í Finnlandi hefðu úrslitin verið allt önnur og við í möguleika á að gera eitthvað á heimavelli."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.

























