Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
banner
   þri 24. júlí 2012 22:48
Karitas Þórarinsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir: Búnar að vera rússíbanalið
Kvenaboltinn
Sólveig í leik með FH í sumar.
Sólveig í leik með FH í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
,,Þetta er einn erfiðasti útivöllur að koma á svo ég held við getum ekki verið annað en gríðarlega sáttar með þessi stig sem við fengum," sagði Sólveig Þórarinsdóttir varnarmaður FH eftir 0 - 3 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í kvöld.

,,Þetta var alls ekki auðvelt. Það er aldrei auðvelt að koma til Vestmannaeyja og sigra. Við bjuggumst ekki við að skora þrjú mörk en við vorum mjög vel undirbúnar og búnar að búa okkur gríðarlega vel undir þetta. Það gekk allt upp."

FH hefur haft tak á ÍBV og vann fyrri leik liðanna 4-1 auk þess sem þær unnu ÍBV í umspili um sæti í efstu deild fyrir þremur árum.

,,Við erum búnar að vera rússíbana lið og virðumst ná okkur algjörlega á strik á móti þeim. Ég veit ekki hvort það eru eyjastelpurnar eða við að eiga góðan dag en eitthvað er það."
Slapp
banner