„Við eigum harma að hefna eftir fyrri leikinn. Menn eru alltaf svekktir þegar þeir tapa og eins og í mörgum leikjum okkar áttum við í vandræðum með að skora," segir Helgi Valur Daníelsson, leikmaður AIK.
Helgi er fulltrúi okkar Íslendinga hjá AIK en liðið mætir FH í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í Kaplakrikanum annað kvöld. Fyrri leikurinn endaði með jafntefli ytra 1-1.
Helgi er fulltrúi okkar Íslendinga hjá AIK en liðið mætir FH í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í Kaplakrikanum annað kvöld. Fyrri leikurinn endaði með jafntefli ytra 1-1.
Helgi er sannfærður um að FH gæti vel spilað í sænsku úrvalsdeildinni.
„Eins og þeir spiluðu á móti okkur. Þeir eru með blöndu af reyndum leikmönnum sem hafa spilað erlendis, eldri leikmönnum sem hafa spilað lengi á Íslandi og svo yngri og spennandi leikmenn sem eiga örugglega eftir að fara út. Það er ekki svo mikill munur milli þessara deilda," segir Helgi.
Helgi fór aðeins í miðbæinn í dag en annars gefst honum lítill tími til að spóka sig um í heimalandinu enda fullur undirbúningur í gangi fyrir leikinn.
„Ég tók einn rúnt með félaga mínum og við skoðuðum það merkilegasta niðri í bæ. Við fórum á Laugaveginn og fengum okkur kaffi og svo fór hann og fékk sér pulsu. Honum líkaði vel en eins og oft þá byrjaði að rigna og við þurftum að drífa okkur heim," segir Helgi.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























