,,Frammistaðan í fyrri hálfleik var kannski ekki alveg nógu góð. Þeir settu á okkur mikla pressu og við náðum ekki að losa það nógu vel og halda boltanum innan liðsins," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir tap sinna manna á móti AIK í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 0 - 1 AIK
,,Breytingin frá því í leiknum í Svíþjóð er að þeir voru miklu þéttari í kvöld. Komu hærra með vörnina og við náðum í Svíþóð að koma okkur inn í ákveðin svæði og halda boltanum þar. En því miður fengum við á okkur klaufalegt mark og í seinni hálfleik voru ákveðnir möguleikar í stöðunni. Atli Viðar kom inn á og er mjög góður að vinna í varnarlínum og stóð sig vel. En vonbrigði að við skyldum ekki ná að pota inn marki og fá framlenginu.
Sendingarnar á síðasta þriðjung voru nógu góðar en engu að síður að þá reyndum við allt. Fórum í 4 4 2 og hentum Guðmanni fram í restina og reyndum hvað við gátum en því miður gekk það ekki í kvöld.
Mér fannst AIK spila töluvert betur í þessum leik heldur en þeir gerðu úti. Það bara er þannig með FH og íslensk lið, að þegar spilað er á móti atvinnumannaliðum að þá þurfa megnið af leikmönnunum að vera góðir í þessum leikjum og það voru ekki eins margir góðir í kvöld eins og í Svíþjóð."
Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu hér að ofan.






















