Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. júlí 2012 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Robert Snodgrass til Norwich (Staðfest)
Robert Snodgrass, 24 ára gamall skoskur kant- og sóknarmaður, er genginn til liðs við úrvalsdeildarfélagið Norwich City.

Snodgrass hefur verið einn af lykilmönnum Leeds United síðustu fjögur ár en nú er hann búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Norwich.

Snodgrass hefur verið orðaður við ýmis úrvalsdeildarfélög síðustu þrjú ár en nú er hann loksins búinn að taka stóra skrefið.

,,Robert Snodgrass hefur lokið félagsskiptum sínum til Norwich City," stendur á opinberri vefsíðu Leeds United.

,,Skoski landsliðsmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Kanarífuglana á fimmtudaginn eftir að hann stóðst læknisskoðun á Carrow Road.

,,Þessi 24 ára gamli leikmaður yfirgefur Leeds United eftir fjögur ár en hann kom til félagsins frá Livingston."

Slapp
banner