Mexíkóska landsliðskonan Veronica Perez er gengin til liðs við kvennalið Stjörnunnar og það sama má segja um hina bandarísku Kate Deines.
Þær hafa þegar fengið leikheimild með Stjörnunni og mega spila með liðinu gegn Þór/KA í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Veronica Perez er sem fyrr segir mexíkósk landsliðskona sem á að baki fjóra landsleiki og hefur skorað eitt mark.
Hún er 24 ára gömul og framherji sem hefur verið hjá Seattle Sounders kvennaliðinu í Bandaríkjunum eins og Deines sem er 22 ára gömul og spilar á miðjunni.



