Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 27. júlí 2012 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Giggs: Í úrvalsdeildarleik hefði hann fengið þrjú rauð
Ryan Giggs var mjög ósáttur við hversu harkalega senegölsku leikmennirnir fóru í tæklingar í fyrsta leik Breta á Ólympíuleikunum.

Bretar gerðu 1-1 jafntefli við Senegal á Old Trafford og voru þrír leikmenn Breta í leiknum tæklaðir mjög harkalega og nálægt því að meiðast alvarlega.

,,Allt sem þú vilt er smá vernd," sagði Ryan Giggs eftir leikinn og var augljóslega ósáttur með dómgæsluna.

,,Þú vilt ekki sjá menn fara útaf en það voru nokkrar ljótar tæklingar og nokkrir leikmenn okkar eru tæpir fyrir sunnudagsleikinn.

,,Það er mjög svekkjandi þegar leikmenn meiðast á Ólympíuleikunum vegna þess að leikmannahópurinn inniheldur aðeins átján leikmenn.

,,Dómararnir héldu engri línu. Craig Bellamy fékk gult spjald fyrir að fara í skallaeinvígi og það voru nokkrar hlægilegar tæklingar sem var ekki einu sinni gefið gult spjald fyrir.

,,Ég veit ekki hversu oft Sadio Mane braut af sér en í úrvalsdeildarleik hefði hann fengið þrjú rauð spjöld."

Slapp
banner