Draumur Kaka að búa í Bandaríkjunum
Nokkur lið eru á höttunum eftir Kaka sem hefur ekki fundið sig hjá Real Madrid frá komu sinni til félagsins fyrir þremur árum.
AC Milan og New York Red Bulls eru talin vera líklegust til að landa leikmanninum en nú lítur allt út fyrir að Kaka endi í New York, hvort sem það gerist nú eða á næsta ári.
Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að Milan eigi ekki nægan pening til að borga Kaka þau himinháu laun sem hann fer fram á, en Diogo Kotscho, umboðsmaður Kaka, segir að hann endi líklega í MLS deildinni.
New York er búið að fá Tim Cahill til sín frá Everton í sumar og nú vill félagið hreppa Kaka samkvæmt spænska fréttamiðlinum Marca.
Kaka á íbúð í Manhattan, New York, og hefur umboðsmaður Kaka sagt að draumur leikmannsins sé að spila í MLS deildinni.
,,Við tölum ekki um samningsviðræður hvort sem það eru orðrómar eða sannindi," sagði Kotscho.
,,Það sem ég get sagt er að það er draumur hjá Kaka að búa í Bandaríkjunum og spila í MLS deildinni. Ef hann fer ekki þangað núna þá mun hann líklega gera það í framtíðinni."

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12