Gaston Ramirez á leið til Liverpool
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum á þessum fína föstudegi.
Arsenal ætlar að reyna að fá Santi Cazorla frá Malaga á 20 milljónir punda og þá er félagið ennþá á eftir Yann M'Vila miðjumanni Rennes og M'Baye Niang 17 ára framherja Caen. (Daily Mirror)
AC Milan og Real Madrid ætla að berjast um Micah Richards varnarmann Manchester City. (Talksport)
Liverpool hefur færst skrefi nær því að krækja í Gaston Ramirez kantmann Bologna en umboðsmaður hans er mættur til Englands í viðræður. (Metro)
Adalberto Baptista stjórnarmaður hjá Sao Paulo segir að Lucas Moura muni ekki fara neitt í sumar. (Talksport)
Chelsea gæti keypt hægri bakvörðinn Cesar Azpilicueta frá Marseille. (Talksport)
Liverpool mun líklega hafna 17 milljóna punda tilboði frá West Ham í Andy Carroll. (Daily Mail)
Swansea mun ekki pottétt selja Joe Allen til Liverpool, jafnvel þó félagið uppfylli klásúlu í samningi leikmannsins með tilboði upp á 15 milljónir punda. (South Wales Evening Post)
Manchester United og Arsenal er á eftir Victor Wanayama miðjumanni Celtic. (Daily Mail)
Ganso er tilbúinn að hafna tilboðum frá Arsenal og AC Milan til að vera áfram hjá Santos í Brasilíu. (Metro)
Everton vonast til að sannfæra John Heitinga um að vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga frá Fenerbahce í Tyrklandi. (Liverpool Echo)
WBA er að skoða kolumbíska varnarmanninn Cristian Zapata hjá Villarreal en Everton ku einnig hafa áhuga. (Birmingham Mail)
Paul Lambert, stjóri Aston Villa, er að íhuga sex milljóna punda tilboð í Aaron Cresswell varnarmann Ipswich. (Express and Star)
Óvíst er hvort Emmanuel Adebayor fari til Tottenham eftir að leikmaðurinn krafðist þess að fá fimm milljónir punda frá Manchester City ef félagaskiptin ganga í gegn. (Daily Star)
Vincent Kompany gerði nýjan samning við Manchester City þrátt fyrir áhuga frá Real Madrid og Barcelona. (Daily Mirror)
Atletico Madrid ætlar að bjóða miðjumanninum unga Oliver Torres góðan samning til að koma í veg fyrir að hann fari til Chelsea. (Talksport)
Ashley Cole hefur ekki ennþá fengið boð um nýjan samning hjá Chelsea þrátt fyrir að eiga bara eitt ár eftir af núverandi samningi. (Daily Mirror)
Blackburn er tilbúið að fara fyrir rétt til að fá uppeldisbætur fyrir Junior Hoilett sem er á leið til QPR. (Metro)
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er sannfærður um að Brendan Rodgers geti komið liðinu aftur í topp fjóra á þessu tímabili. (The Sun)
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar





