Heimild: Sky
Arjen Robben og Franck Ribery leikmenn FC Bayern eru orðnir félagar á nýjan leik eftir að hafa lent saman undir lok síðasta tímabils.
Leikmennirnir rifust heiftarlega í hálfleik í leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í apríl.
Talið er að Ribery hafi fengið 50 þúsund pund í sekt fyrir sinn þátt í rifrildinu en leikmennirnir hafa núna samið frið.

,,Eitthvað gerðist og þetta var ekki auðvelt. Mér fannst þetta vera leiðinlegt. Samband okkar hafði verið mjög gott innan og utan vallar fram að þessu," sagði Robben.
,,Núna er allt í lagi á nýjan leik. Við erum á leið í sömu átt á nýjan leik og ég vonast til að njóta þess að spila aftur með honum."