Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. júlí 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Fabio Capello: Ég hefði gert betur á EM
Fabio Capello segir að Englendingar hefðu farið lengra en í 8-liða úrslit á EM í sumar ef hann hefði verið áfram við stjórnvölinn.

Capello hætti með enska landsliðið í febrúar þar sem hann var ósáttur við að enska knattspyrnusambandið ætlaði að taka fyrirliðabandið af John Terry eftir að hann var kærður fyrir kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand.

,,Ef ég hefði verið með ykkur þá hefði þetta gengið ennþá betur. Ég vann hér í fjögur ár og eftir það sem gerðist þá vildi ég hætta," sagði Capello sem var í gær ráðinn landsliðsþjálfari Rússa.

,,Við vorum komnir í úrslitakeppnina og það var einungis mál John Terry sem varð til þess að ég gat ekki farið í úrslitakeppnina."

,,Í samningi mínum stóð svart á hvítu að þjálfarinn myndi einn ákveða hver er fyrirliði. Allir landsliðsþjálfarar vinna í tvö ár í átt að ákveðnu markmiði en ég fékk síðan ekki tækifæri til að fara með Englendinga á EM."

Slapp
banner
banner
banner
banner