Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 27. júlí 2012 13:07
Elvar Geir Magnússon
Cazorla ekki til Arsenal á neinu útsöluverði
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Malaga, segir að Arsenal geti gleymt því að fá Santi Cazorla á einhverju útsöluverði.

Malaga á í fjárhagserfiðleikum og hafði Arsenal vonast til þess að það myndi gera það að verkum að félagið fengi Cazorla ódýrari en ella.

Sjálfur hefur Cazorla lýst því yfir að hann hafi áhuga á að ganga til liðs við Arsenal.

„Santi er ekki að fara fyrir 16 milljónir punda, það myndi senda út röng skilaboð," segir Pellegrini.

Cazorla er 27 ára og hefur leikið 45 landsleiki fyrir Spán.
Slapp
banner
banner