Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, var allur hinn hressasti í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar í hádeginu í dag. Hann var valinn í úrvalslið umferð 1-11 í Pepsi-deildinni og tók á móti viðurkenningur fyrir það.
Framundan hjá KR er stórleikur á mánudag gegn ÍA.
„KR - ÍA í Frostaskjóli er einn stærsti leikurinn. Það er mjög spennandi að takast á við það. Menn tala mikið um að þetta séu sérstakir leikir. Frábært að fá Skagamenn upp til að endurvekja þetta," segir Hannes.
Spennandi verður að fylgjast með Gary Martin í leiknum en hann gekk nýlega í raðir KR frá ÍA.
„Það eykur aðeins á dramatíkina og gefur auka krydd. Gary er að koma vel inn í þetta."
Hannes segir að Gary hafi þó látið lítið fyrir sér fara í klefanum enn sem komið er.
„Það hefur farið lítið fyrir honum fyrstu dagana en hann er brosmildur og hress og tekur vel í það þegar menn skjóta eitthvað á hann. Þetta er toppnáungi sýnist mér,"
KR-ingar eru á leið saman á nýju Batman-myndina, The Dark Knight Rises, og var Hannes fullur eftirvæntingar eins og sjá má í viðtalinu í sjónvarpinu hér að ofan.
























