Arnór Ingvi Traustason, miðjumaður Keflavíkur, hefur verið óvæntasta stjarna Pepsi-deildarinnar í sumar. Þessi ungi og efnilegi leikmaður var valinn í úrvalslið umferða 1-11 í deildinni.
„Það er mjög mikill heiður að vera meðal leikmanna sem maður leit upp til þegar maður var yngri," sagði Arnór eftir að hafa tekið við viðurkenningu í hádeginu í dag.
„Mitt persónulega markmið er að gera vel fyrir félagið og koma því á góðan stað."
Keflavík mætir Grindavík í grannaslag á mánudag. Keflavík vann 4-0 sigur þegar liðin mættust í fyrri umferðinni en Arnór býst ekki við eins auðveldum leik á mánudag.
„Nei ég býst ekki við því. Ég held að Grindvíkingar mæti grjótharðir til leiks."
Ætlar að vera betri á mánudaginn
Keflavík náði sér ekki á strik í síðustu umferð en þá tapaði liðið fyrir Grindavík. „Þetta var mögulega skelfilegasti leikur sem við höfum spilað í sumar. Það gekk ekki upp."
Arnór náði sér sjálfur ekki á strik í leiknum en er ákveðinn í að leiðrétta það á mánudaginn. „Það er alveg á hreinu."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























