Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. júlí 2012 15:00
Magnús Már Einarsson
ÍBV í bleikum bolum
Leikmenn ÍBV styðja forvarnarverkefni ÍBV á þjóðhátíð
Mynd: Eyjafréttir - Júlíus Ingason
Meistaraflokkur ÍBV tók sér tíma frá æfingum í gær, fimmtudag, til þess að leggja baráttunni gegn kynferðisofbeldi lið.

Liðið stillti sér upp ásamt þjálfurum sínum til myndatöku í bolum Forvarnahóps ÍBV en hópurinn stendur fyrir átaki gegn kynferðislegu ofbeldi á Þjóðhátíð 2012.

Vill meistaraflokkur ÍBV þannig leggja áherslu á að slíkt ofbeldi verður ekki liðið, hvorki á hátíðinni, innan raða íþróttahreyfingarinnar né í samfélaginu.

Slapp
banner