Nasri og Menez í landsliðsbann
Samir Nasri hefur verið settur í þriggja leikja bann af franska knattspyrnusambandinu fyrir að móðga fréttamenn.
Franska knattspyrnusambandið fundaði um málið í dag og ákvað að miðjumaðurinn fengi þriggja leikja bann, sem er fyrir að móðga fréttamenn sem spurðu hann spurninga eftir tapleik Frakka í átta liða úrslitum Evrópumótsins gegn Spáni.
Jeremy Menez fær einnig eins leiks bann fyrir að rífast við dómara leiksins gegn Spáni og fyrir að rífast við Hugo Lloris, markvörð og fyrirliða franska landsliðsins.
Yann M'Vila og Hatem Ben Arfa fengu viðvaranir en engin leikbönn fyrir brot sín, en M'Vila tók hvorki í höndina á Olivier Giroud né á Laurent Blanc landsliðsþjálfara Frakka þegar honum var skipt útaf gegn Spáni. Ben Arfa reifst við Blanc í búningsklefanum eftir tap Frakka gegn Svíþjóð í riðlakeppninni.
,,Fundurinn var rólegur, leikmennirnir útskýrðu mál sitt og tóku vel í allt sem var sagt," sagði Jean Mazzella, yfirmaður agamála hjá franska knattspyrnusambandinu.
,,Þeir vörðu gjörðir sínar en svöruðu öllum spurningum. Þeir báðust ekki fyrirgefningar en sýndu þó eftirsjá."
Menez og Nasri missa því af vináttulandsleik gegn Úrúgvæ en Didier Deschamps, nýr landsliðsþjálfari Frakklands, mun ekki hafa Nasri í liðinu í fyrstu tveimur leikjum liðsins í undankeppni HM 2014.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar