Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. júlí 2012 18:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Newcastle á eftir Williams
Newcastle er að reyna að fá varnarmanninn Ashley Williams í sínar raðir frá Swansea.

Williams stóð sig frábærlega á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn vetur.

Þessi 27 ára gamli leikmaður missti einungis af einum leik á tímabilinu en samtals hefur hann leikið tæplega 200 leiki með Swansea síðan hann kom til félagsins frá Stockport árið 2008.

Nokkur félög hafa áhuga á Williams og Newcastler er þar efst á blaði.

Ljóst er hins vegar að Swansea mun ekki leyfa fyrirliða sínum að fara ódýrt og því þarf Alan Pardew stjóri Newcastle að kafa nokkuð djúpt í veskið til að krækja í hann.
Slapp
banner
banner