fös 27.júl 2012 17:00
Magnús Már Einarsson
John Terry ákærður fyrir kynþáttafordóma
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært John Terry fyrirliða Chelsea fyrir meinta kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand varnarmanns QPR í leik liðanna þann 23. október í fyrra.
Á dögunum var Terry sýknaður af ásökunum um kynþáttaníð eftir fimm daga réttarhöld. Enska knattspyrnusambandið átti hins vegar eftir að taka málið fyrir og eftir langa rannsókn hefur verið ákveðið að ákæra Terry fyrir ummæli sem hann lét falla um Ferdinand í leiknum.
Ferdinand sakaði Terry um að kalla sig „fucking black cunt" eða „helvítis svarta píku".
Terry fékk frest til 3. ágúst til að svara fyrir sig og einungis nokkrum mínútum eftir að kæran var birt nú síðdegis birti Chelsea yfirlýsingu þar sem kom fram að Terry neiti ásökunum og vilji fá sérstök réttarhöld hjá enska knattspyrnusambandinu vegna málsins.
Hann fer þar með sömu leið og Luis Suarez framherji Liverpool sem var í byrjun árs dæmdur í átta leikja bann hjá enska knattspyrnusambandinu fyrir kynþáttafordóma í garð Patrice Evra.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar