Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 27. júlí 2012 17:21
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Gylfi Þór: Spila vonandi fyrir aftan framherjann eða á miðjunni
Gylfi Þór Sigurðsson er í stuttu viðtali á Goal.com fyrir æfingaleik Tottenham gegn Liverpool á morgun. Bæði Tottenham og Liverpool vildu fá Gylfa í sínar raðir í sumar en hann ákvað að ganga í raðir Spurs þar sem það heillaði mikið.

,,Allt (við liðið er aðlaðalandi). Það er nýtt æfingasvæði og þetta er stórt félag með frábæra leikmenn. Það er verið að tala um nýjan leikvang og metnaður félagsins er mjög mikill," sagði Gylfi.

Gylfi var fyrsti leikmaðurinn sem Andre Villas-Boas fékk til Tottenham eftir að hann tók við liðinu af Harry Redknapp í sumar.

,,Hann þurfti ekki að selja sjálfan sig því að það sem hann gerði hjá Porto var stórkostlegt. Hlutirnir gengu ekki upp hjá honum með Chelsea en það er líklega eitt erfiðasta starfið."

,,Þú hefur séð marga stjóra fara þangað og þetta hefur ekki gengið hjá þeim. Ég held að hann muni gera rétta hluti hjá Tottenham. Þú sérð leikmennina, þeir eru að njóta þess að æfa."


Vangaveltur hafa verið um framtíð Luka Modric og Rafael van der Vaart en Gylfi segir að eina málið sem skiptir máli fyrir sig sé að spila, sama hvaða stöðu það er í.

,,Vonandi mun ég spila fyrir aftan framherjann eða á miðjunni. Svo lengi sem ég er að spila þá er ég ánægður."

,,Eins og allir aðrir leikmenn þá vil ég spila. Svo vonandi fæ ég einhverjar mínútur. Ég vil standa mig vel fyrir liðið."

Slapp
banner
banner