Heimild: Heimasíða Norwich
Norwich hefur keypt varnarmanninn Michael Turner frá Sunderland en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Turner, sem er 28 ára gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við Norwich.
Turner var áður á mála hjá Hull en hann yfirgefur herbúðir Sunderland eftir að hafa verið kominn aftarlega í röðinni hjá miðvörðunum.

,,Ég er ánægður með að fá Michael í hópinn því hann er leikmaður sem hefur mikla reynslu í ensku úrvalsdeildinni," sagði Chris Hughton stjóri Norwich.
,,Hann er 28 ára og er því að koma til okkar á góðum aldri. Ég er ánægður með að bjóða hann velkominn til Norwich City."