Heimild: Football Italia
Matias Fernandez, leikmaður Sporting Lisbon í Portúgal er á leið til ítalska félagsins Fiorentina.
Fernandez, sem er 26 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Sporting undanfarin ár, en hann kemur frá Síle.
Kaupverðið á leikmanninum er talið nema um 3 milljónir evra, en hann fer í læknisskoðun í kvöld áður en hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Upphæðin á kaupverðinu hækkar komi ítalska liðið með að tryggja sér þátttöku í annað hvort Evrópudeildinni eða Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.




