1.deild: Leiknismenn með útisigur á KA
Einn leikur fór fram í fyrstu deild karla í kvöld, en þar tókst Leikni úr Breiðholti að vinna KA á Akureyri.
Damir Muminovic kom gestunum yfir með marki úr vítaspyrnu á 16. mínútu leiksins áður en Ólafur Hrannar Kristjánsson bætti við öðru marki í byrjunar síðari hálfleiks.
Gunnar Örvar Stefánsson minnkaði muninn undir lok leiksins, en lengra komst heimaliðið ekki og því 1-2 sigur Leiknis staðreynd. Leiknir fer því upp í níunda sætið með 13 stig en KA er áfram í sjötta sæti með 16 stig.
Úrslit og markaskorarar:
KA 1-2 Leiknir R.
0-1 Damir Muminovic ('16 )
0-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('49 )
1-2 Gunnar Örvar Stefánsson ('82 )

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12