Valur í úrslitaleikinn - Stjarnan og Þór/KA í framlengingu
Undanúrslit Borgunarbikars kvenna fóru fram í kvöld, en Valur komst þar áfram eftir sigur á KR.
Valur vann KR með tveimur mörkum gegn engu. Johanna Rasmussen kom Val yfir á 50. mínútu áður en Rakel Logadóttir tryggði sigurinn undir lok leiks og leikur því liðið til úrslita bikarsins í ár.
Stjarnan og Þór/KA fór í framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1, en Stjarnan tók forystuna. Harpa Þorsteinsdóttir kom Stjörnunni yfir á 22. mínútu áður en Sandra María Jessen jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks.
Úrslit og markaskorarar:
KR 0-2 Valur
0-1 Johanna Rasmussen ('50 )
0-2 Rakel Logadóttir ('90 )
Stjarnan 1-1 Þór/KA (Í framlengingu)
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir ('22 )
1-1 Sandra María Jessen ('54 )
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:45



