Stjarnan komst í kvöld í úrslitaleik Borgunarbikars kvenna eftir 2-1 sigur á Þór/KA eftir framlengingu.
Harpa Þorsteinsdóttir kom Stjörnunni yfir á 22. mínútu áður en Sandra María Jessen tókst að jafna metin á 54. mínútu.
Leikurinn fór í framlengingu í kvöld, en þar var það Stjarnan sem stóð uppi sem sigurvegari þar sem Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði sigurinn með marki á 106. mínútu.
Stjarnan mætir því Val í úrslitaleiknum sem fer fram á Laugardalsvelli.
Úrslit og markaskorarar:
Stjarnan 2-1 Þór/KA
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir ('22 )
1-1 Sandra María Jessen ('54 )
2-1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir ('106 )



