Umfjöllun: HK-ingar sóttu þrjú stig á Dalvík
Magni Þór Óskarsson skrifar frá Dalvík
Dalvík/Reynir 0-3 HK
0-1 Jóhann Andri Kristjánsson ('4 )
0-2 Sölvi Víðisson ('54 )
0-3 Farid Abdel Zato-Arouna ('90 )
Rautt spjald: Kristján Sigurólason (Dalvík/Reynir) ('90)
Á Dalvíkurvelli í kvöld áttust við heimamenn í Dalvík/Reyni og Handknattleiksfélag Kópavogs í sól og sumaryl. Til að gera langa sögu stutta fóru handboltamennirnir með sanngjarnan 0-3 sigur af hólmi og eru þar með komnir með 24 stig eru í harðri baráttu um að komast aftur upp í 1. deild. Draumurinn er þó ekki búinn hjá Norðanmönnum en það er á brattan að sækja.
Áhorfendur á vellinum voru varla búnir að koma sér fyrir (þar á meðal undirritaður) þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Það kom strax á 4. mínútu og var þar að verki Jóhann Andri Kristjánsson en hann prjónaði sig laglega framhjá Steinþóri markverði og spyrnti knettinum fyrirhafnalítið í netið.
Heimamenn reyndu hvað þeir gátu að jafna metinn en uppskáru lítið fyrir erfiðið. Það næsta sem þeir komust í fyrri hálfleik var skot fyrir utan teig hjá Hermanni Albertssyni fyrirliða og hálffæri sem Bessi Víðisson fékk einn á móti markmanni í uppbótartíma. Markvörður Sunnanmanna, Beitir Ólafsson fékk slæmt högg á nebbann, eftir um það bil korters leik og tafðist leikurinn á meðan hann fékk meðhöndlun. Hann harkaði þó af sér og spilaði afganginn af leiknum.
Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af mikilli grimmd og voru staðráðnir í að jafna leikinn sem fyrst og það kom því eins og köld vatnsgusa framan í þá þegar Sölvi Víðisson kom gestunum í 0-2 á 54. mínútu eftir fína sendingu frá Farid Abdel Zato-Arouna sem hafði unnið boltann af varnarmanni D/R.
Eftir þetta varð fátt um fína drætti fyrir utan eitt og eitt færi. Hilmar Daníelsson var óheppinn að skora ekki eftir að hann komst einn í gegn eftir frábæra sendingu frá Pétri Heiðari Kristjánssyni en Beitir markvörður var vel á verði. Farid Abdel Zato-Arouna kórónaði svo flottan leik sinn og 0-3 sigur gestanna í Handknattleiksliðinu með fínu skoti þegar vallarklukkan sýndi rúmar 94 mínútur. Niðurstaðan á Dalvíkurvelli í kvöld var því 0-3 sanngjarn sigur gestanna.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
12:00