„Ég er bara gríðarlega sáttur og mjög sáttur með vinnusemina í liðinu,“ sagði Ragnar Gíslason þjálfari HK eftir að lærisveinar hans lögðu Dalvík/Reyni 3-0 á Dalvík í kvöld. „Þetta er mjög erfiður völlur að koma hingað. Við vorum búnir að spila við Dalvík í fyrri umferðinni sem var líka mjög erfiður leikur þannig að við vissum að þetta yrði erfitt. Tala nú ekki um hérna á þeirra heimavelli, þannig að ég er bara mjög sáttur með þrjú stig.“
„Við erum búnir að vera að bæta okkar leik og búnir að vinna núna þrjá leiki í röð. Núna er bara spurning um að halda haus og halda áfram að bæta við. Ég hef fulla trú á því að við eigum eitthvað inni ennþá.“
Nánar er rætt við Ragnar í sjónvarpinu hér fyrir ofan.






















