Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 28. júlí 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikir: Benfica vann Real Madrid - Bilbao tapaði
Nokkrir æfingaleikir fóru fram í gær, en liðin æfa sig nú af kappi fyrir komandi tímabil í Evrópuboltanum.

Portúgalska liðið Benfica skellti Real Madrid með fimm mörkum gegn tveimur. Það var fyrrum Madrídingurinn Javi Garcia sem kom Benfica yfir áður en Jose Callejon jafnaði metin stuttu síðar. Callejon kom Real Madrid svo yfir á 20. mínútu áður en Axel Witsel jafnaði metin tveim mínútum síðar.

Þrjú mörk fylgdu svo í kjölfarið hjá Benfica. Martins skoraði eitt og þá skoraði Enzo Perez tvennu.

Franska stórliðið Lille vann þá Athletic Bilbao með þremur mörkum gegn einu. Marko Basa kom Lille yfir aður en Gomez jafnaði fyrir Bilbao. Salomon Kalou kom Lille aftur yfir og þá bætti Tulio De Melo við þriðja markinu.

Hægt er að sjá helstu úrsltin hér að neðan.

Úrslit og markaskorarar:

Benfica 5-2 Real Madrid
1-0 Javi Garcia ('4 )
1-1 Jose Callejon ('18 )
1-2 Jose Callejon ('20 )
2-2 Axel Witsel ('22 )
3-2 Enzo Perez ('53 )
4-2 L. Martins ('59 )
5-2 Enzo Perez ('85 )

Lille 3-1 Athletic Bilbao
1-0 Marko Basa ('45 )
1-1 I. Gomez ('66 )
2-1 Salomon Kalou ('67 )
3-1 Tulio De Melo ('73 )

Newcastle 1-1 Olympiakos
1-0 Steven Taylor ('25 )
1-1 K. Mitroglou ('79 )
Slapp
banner
banner
banner